Wednesday, August 08, 2007
Hver hefur gaman af því að blogga, rétt upp hönd.
Ok, gott þá megið þið sjá um þetta :) Ég hef ekkert gaman af þessu.
Ég held líka að fólk sé löngu hætt að nenna að kíkja hingað ég blogga svo sjaldan.
Ef þið viljið endilega hnýsast um mig, þá er ykkur héðanaf velkomið að hringja bara í mig og draga mig á kaffihús eða í göngutúr.
Ég held að það sé mun áhrifaríkara heldur en að reyna að finna slúður á síðunni.
Síðan verður allavega í hvíld uns annað kemur í ljós.
E.s. Ef einhver veit um góða og einfalda geymslusíðu fyrir myndir endilega látið mig vita. Svo ég geti allavega deilt einhverju með ykkur rafrænt og sannað fyrir sjálfri mér að ég er ekki algjör tæknivanviti.
Elska ykkur öll.
Gerdur kl.19:30
Wednesday, January 10, 2007
Þá eru skólarnir byrjaðir og mikið um að vera. Á laugardaginn næsta erum við að fara að syngja á galakvöldi í Laugardalshöllinni, stórt og flott atriði kór, einsöngur og dans. Dansararnir eru meira að segja að koma að utan og ef mig minnir rétt þá er þetta frumflutningur þessarar útsetningar hans Ívars Helgasonar.
Í vikunni eftir erum við að fara að syngja á norðurlandaráðstefnu lions klúbbsins og syngjum við þjóðsöngva norðurlandanna. Það hefur verið mikil áksorun að læra finska þjóðsönginn á finnsku, en hann er yfirleitt sunginn á norsku ef mig misminnir ekki. Í það minnsta á svona alþjóðlegum stöðum.
Svo mikið eru um æfingar sem stendur, sem er af því góða. En annars fer þessu að ljúka hjá mér, því ég hef ákveðið að þetta sé síðasta önnin mín í þessu ágæta kór. Svo fer ég að athuga hvað stendur annað til boða. Það tekur óskaplega mikið á að vera í kór með svona mikið af ungu fólki, þó að þetta sé nú allt hið besta fólk. Það tekur bara allt svo langan tíma.
Næst á dagskrá: æfing.
Gerdur kl.18:13
Monday, December 18, 2006
Bara eitt próf eftir. Á morgun meira að segja.
Á laugardainn var vinakvöld á aðventu, eða tónleikar kórsins. Að undanskildum nokkrum tæknilegum mistökum voru þetta bestu tónleikar sem ég hef sungið á. Páll Óskar og Monika Abendroth voru æðisleg, alveg hreint út sagt frábær. Og þvílíkur heiður að fá að syngja með þeim.
Eftir tónleikana var Helga Margrét svo æðisleg að halda eftirpartý til að fagna góðum tónleikum með því að hella fullt af nýliðum fullum á láta þá verða sér til skammar, sem er að sjálfsögðu bara önnur leið til að bjóða þau velkomin þar sem þau eru nú orðnir fullgildir meðlimir. Þetta ver alveg hreint geggjað party, sjaldan verið svona skemmtilegt og ekki varð það verra þegar mamma hennar Helgu kom og djammaði með okkur (frekar fyndið). Ég skemmti mér alveg konunglega og vona bara að næsta kórpartý verði svona geggjað.
Frá og með morgundeginum eru svo jólin komin.
Og á hinn daginn eru svo krúsínurnar Stella og Svenni að fara að útskrifast. Og að sjálfsögðu verður sungið þar.
Nú ætla ég aftur á móti að fara að einbeita mér að leysnimargfeldi.
Gerdur kl.16:35
Saturday, December 16, 2006
Afhverju líður tíminn svona hratt?
Hvert fór tíminn? Hann bara hvarf. Ég ætlaði að gá að honum áðan og þá var hann bara stunginn af.
Minna en 6 tímar í grsafræði
Gerdur kl.06:11
Thursday, December 14, 2006
Bara 2 tímar í próf, vonandi gengur allt vel.
Gerdur kl.14:28
Ég hef ákveðið eftir að hafa prufað íslenskt heimasíðukerfi að halda mig við gömlu síðuna mína. Hvers vegna ætti maður að fá sér eitthvað nýtt þegar maður getur lagað eitthvað gamalt. Ekki er þó ráðlagt að reikna með því að það verði bloggað eitthvað af viti fyrr en eftir próf (e.19.des). Ég þegar lokið 1 prófi og tek mitt annað próf eftir nokkra tíma.
Hér fyrir neðan eru eitthvað af færslunum sem voru á íslensku síðunni sem mér finnst skemmtilegar og ég hef því ákveðið að taka með mér.
Grasafræði
"The majority of flowers include both stamens and carpels, and such flowers are said to be perfect (bisexual)." -Biology of plants, 7.edition, P.H.Raven; R.F.Evert; S.E.Eichhorn
Fyrir okkur íslendingana er kanski auðvelt að misskilja þetta, en ég er viss um að einhverjir af litlu tvíkynhneigðu blómavinum mínum finnst gaman að heyra þetta.

Liljan er dæmi um tvíkynja blóm, hefur bæði frævu og frævil (fræfla), eins og augljóslega sést á þessari mynd.
Gdynia
Aðlögun að flotjafnvægi
Fiskar myndu sökkva ef þeir hefðu ekki sundblöðru og hafa þeir sama þrýstingur og í umhverfi þeirra.
Sundblaðra, loftfyllt blaðra milli kviðarhols og hryggs, sem stjórnar staðsetningu fisksins í vatninu. Þroskast sem útvöxtur frá vélindanu eða meltingarveginum.
Flestir beinfiskar hafa því sama þéttleika og vatnið í kringum þá (eru náttúrulega flothæfir) og þurfa því ekki að synda til að halda sér lóðréttum. Eina hreyfingin sem þeir nota þegar þeir hvíla sig er hreyfing eyrugganna. Fiskar sem geta sveimað svona í vatni hafa yfirleitt mjög þróaðan sundmaga.
Í sjávarfiskum tekur hún um 5% líkamsrúmmáls en í ferskvatnsfiskum um 7%. Munurinn liggur í þéttni vatns. Sjór er þéttari svo minni sundmagi er þarfur.
Margir fiskar seyta gasi eða losa gas úr blöðrunni í samræmi við breytingar á dýpi (þrýsting). Meira dýpi ® meiri þrýstingur ® minni sundmagi ® flothæfni minnkar. Og öfugt. Fiskurinn stjórnar rúmmáli sundmagans með því að hleypa lofti inn í bloðruna þegar þegar hann syndir niður og með því að hleypa loftinu út þegar hann syndir upp.
Sumir fiskar (t.d. álar og laxfiskar) halda tengingu milli sundmagans og vélindans (ductus pneumaticus) alla ævi. Hjá öðrum fisktegundum hverfa þessi göng á lirfustiginu og því verður sundmaginn alveg lokaður (t.d. þorskfiskar). Hjá flatfiskum hverfur undmaginn alveg, enda eru flestir botnlægir fiskar án sundmaga. Brjóskfiskar eru einnig án sundmaga.
Hjá fiskum með lokaðan sundmaga er loftþrýstingnum í sundmaganum stjórnað með flutningi lofttegunda milli blóðs og sundmaga. Fiskar með opinn sundmaga hafa hinsvegar möguleika á að pressa loft út um munninn eða fara upp á yfirborðið og sækja sér loft. Þeim er því ekki sama hætta búin við hratt sund uppi í vatnsmassanum. Yfirleitt taka þeir þó loft úr blóðinu ef bæta á lofti í sundmagann. Fiskar sem lifa í efstu lögum vatnsmassans (eða í grunnu vatni) eru yfirleitt með opinn sundmaga. Til að sundmaginn geti tekið að starfa eðlilega þarf fyrst að fylla hann af lofti. Ef kviðpokaseiði eru hindruð í að sækja sér loft í sundmagann mun hann aldrei starfa eðlilega.
Aðrar leiðir til að halda flotjafnvægi
Myndin sýnir sundmaga og gaskirtil hjá fisk sem hefur lokaðan sundmaga

Amphibians
Froskdýr eru hryggdýr sem eyða fyrri hluta lífs síns undir vatni (anda með tálknum) og seinni hluta lífs síns á landi (anda með lungum). Froskdýr hafa kalt blóð; líkamshiti þeirra er háður hitastigi umhverfi þeirra. Það eru til þrír flokkar núlifandi flokkar froskdýra: salamöndrur (urodeles); froskar og körtur (anurans) og ormakörtur (gymnophiones)

Salamandra

Froskur

Ormakarta (fótalaust froskdýr)
Gerdur kl.12:19
Saturday, November 18, 2006
Er að prufa 123.is/gerdurogeinar þannig að ef þið hafið áhuga getið þið skoðað síðuna, annars látið þið það bara vera.
Gerdur kl.17:20
Sunday, November 12, 2006
...það er svo leiðinlegt að vera einn heima. Elsku Einar vertufarðu nú að koma heim...
Gerdur kl.22:54
Monday, November 06, 2006
Helgin var hress. Ég fór á kræklingakvöld, fékk stelpurnar aðeins heim til mín áður en við lögðum í hann og fengum okkur nokkur tequilaskot... kanski aðeins of mörg tequila skot... við lögðum af stað uppí haukahús mjög hress, ég, einar, karó, hildur og jakob. MJÖG hress. Fengum okkur svo mat og eitt vínsglas þegar að staðinn var komið. Eftir matinn var auðvitað eftirréttur, eða haxabollan. Sem er það hættulegasta sem ég hef á æfinni vitað um. Það var örugglega svona 60 % spríri og 40% bland. Og ég náttúrulega fann ekkert bragð af þessu. Stuttu síðar er verið að halda á mér heim :) og helga greyið þurfti að fara ein niðrí bæ á einhvern hommabar... hahahaha... góð helga, samt sorry að ég kost ekki niðrí bæ, ég fékk eiginlega engu um það ráðið .
kennerinn er orðinn mjög seinn í grasafræði. ætli hann sé ekki að koma ?
Gerdur kl.13:05
Friday, November 03, 2006
Fór í Hvalfjörðinn eftir próf í dag. Að tína kræklinga. Fyrir kræklinga súpuna. Sem verður vonandi smökkuð á morgun. Fer eftir því hversu köld ég verð. Og hversu mikið að kræklingum er til.
Annars er ég bara hress, með lífið og tilveruna. Fór í bæinn í dag, vei ekki einusinni hvenær ég fór þangað síðast, og keypti mér þessa dýrindis kápu.
Hlakka til á morgun.
Gerdur kl.21:34